Erfðaréttur
Ráðgjöf og aðstoð á sviði erfðaréttar, meðal annars við gerð erfðaskráa og skipti dánarbúa.
Lögfræðiþjónusta í Stykkishólmi
Stofan er staðsett að Aðalgötu 24 í Stykkishólmi og veitir einstaklingum og fyrirtækjum almenna lögfræðiþjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar.
Lögmenn stofunnar hafa réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti.
Málflutningsstofa Snæfellsness sinnir allri almennri lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hér að neðan má finna yfirlit yfir helstu sérsvið stofunnar.
Ráðgjöf og aðstoð á sviði erfðaréttar, meðal annars við gerð erfðaskráa og skipti dánarbúa.
Ráðgjöf og aðstoð vegna kaupa og sölu fasteigna, galla og annarra vanefnda, sem og húsaleigumála.
Innheimta krafna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Verjendastörf og réttargæsla brotaþola í sakamálum.
Ráðgjöf og hagsmunagæsla á sviði skaðabótaréttar og í slysamálum.
Þjónusta vegna skipasölu, þar á meðal útflöggunar og erlendra veðsetninga.
Ráðgjöf á sviði stjórnskipunarréttar og álitaefna sem varða stjórnarskrá.
Ráðgjöf og aðstoð á sviði sveitarstjórnarréttar.
Ráðgjöf vegna hjúskapar og sambúðar, þar á meðal kaupmála, samninga sambúðarfólks og fjárskipta við hjúskapar- og sambúðarslit.
Hafðu samband til að ræða málið.
Hafa samband